Þemavika
Leiklistarval:
Undirbúningsvinna fyrir árshátíðaratriði úr söngleiknum Æsir og Þursar.
Verkið var frumflutt fyrir 10 árum síðan á 40 ára afmæli Kleppjárnsreykjaskóla.
Þátttakendur í leikhópnum eru úr 4-6 bekk:
Harpa, Linda María, Arnar, Bjartmar, Jóhann, Melkorka, Sverrir,Margrét og Ingi Þór.
Leiðbeinendur Lára Kristín og Ása Hlín
Hópurinn stúderaði sögusvið leik og söngverksins (norræna goðafræði), dýpkaði kynni sín af sögupersónum og hver og einn valdi sér einn karakter úr verkinu og útfærði sem pappírsbrúðu. Búningarnir úr fyrri uppfærslu eftir Guðrúnu Þórðardóttur og Elísabetu Halldórsdóttur voru dregnir fram og hver og einn fékk að máta búning. Horft var á upptöku af sýningunni og nemendur glöggvuðu sig á söguþræði og höfðu einnig gaman af að stúdera hver lék hvað í denn.
Miðvikudagur 22.2.2012
Öskudagur
Í dag skellti leiklistarhópurinn sér í öskupokasaumaskap.
Síðan var tekið til við andlitsmálun og lesið var hið klassíska ævintýri um Öskubusku í tilefni dagsins.
Í lok tímans horfðum við enn og aftur á æsi og Þursa og nú vorum veið að velta vöngum yfir hvaða senur væru góðar fyrir árshátíðaratriðið sem í bígerð er.
Allir voru glaðir og kátir